22.08.2008 00:02:54 / helgarj
jæja þá er ég víst mætt í bæinn ,)
er hjá Örnu núna, og í viku í viðbót... þá fáum við Andrea íbúðina okkar.. á Ránargötu 11 ,) geggaður staður...
Skólapartý á morgun í deildinni minni, Hönnunar og Arkitektúrdeild ,) og svo menningarnótt á laugardaginn... nóg að gera, endalaust djamm ! gott að ljúka því bara af áður en skólinn byrjar haha
en hann byrjar víst á mánudaginn
jæja ætla að fara að smakka ostasalat sem Arna er að búa til, hún var að kalla á mig ,) haha já ég veit klukkan er 12 á miðnætti... en hún Arna kallar ekki allt ömmu sína
Ciao !
»
12.08.2008 22:50:34 / helgarj
Var að setja inn nokkrar nýjar myndir á Flickerinn...
http://www.flickr.com/photos/26105547@N03/Hef ekkert verið í stuði til að skrifa hér inn undanfarið... og nenni því ekkert núna heldur haha þessar myndir segja flest sem segja þarf...
er samt alveg búin að hafa það ágætt sko ,)
Bræðslan, Neistaflug og Fiskidagurinn mikli, vinna vinna vinna, fara í heita pottinn, rúnta og hanga á netinu...
haldiði kannski að ég ætti að taka upp úr töskunum eftir að ég flutti heim... neei er það nokkuð, ég er að fara að flytja í næstu viku ,)
Sé ykkur í bænum... veit ekki alveg hvaða dag ég kem samt, annaðhvort á þriðjudaginn eða föstudaginn
»
20.07.2008 23:58:33 / helgarj
Ég var að tala við Örnu og hún sagði mér að fara að blogga þegar ég hefði ekkert að gera, var eitthvað að kvarta yfir aðgerðarleysi hérna á Eskifirði...
Þannig að í fréttum er þetta helst :
við Andrea erum búnar að fá íbúð í bænum ,) á Ránargötunni ! æði æði
ooog ég hlakka svo til að flytja og byrja í skólanum.... vildi óska þess að hann byrjaði bara á morgun helst ! get ekki beðið... vil bara fara að byrja... oooog ljúka þessu af sem fyrst
haha
finnst ég eiginlega bara vera að bíða hérna fyrir austan núna... og það er alveg HEILL MÁNUÐUR eftir úfff... og ég bara búin að vera hérna í 2 og hálfa viku eeen Arna mín er að koma austur næstu helgi og við ætlum á Bræðsluna á Borgarfirði eystra í útilegu og svo kemur víst verslunarmannahelgin þar á eftir ooog þá er nú ekkert svo rosalega langt eftir ,)
ég fór til miðils á sunnudaginn fyrir viku, til Þórhalls miðils ,) hef aldrei farið áður sko...
og hann sagði mér ýmislegt sniðugt, svona í aðalatriðum
að ég ætti alltaf eftir að eiga heima í útlöndum í framtíðinni, líklega í Ameríku
að maðurinn minn yrði pottþétt útlendingur, ekki ameríkani samt
og að hann yrði hávaxinn og sterkur
að námið mitt ætti eftir að fara rooosalega vel
að ég ætti aldrei eftir að þurfa að hafa áhyggjur af peningum, ég myndi eiga nóg af þeim
að ég mætti ekki eiga kærasta næsta allavega árið eða 2
og svo að mér ætti eftir að líða illa, ólýsanlega illa
ekki alveg jafn gott ,)
og að ég væri núna að ganga í gegnum MJÖG mikilvægt PRÓF í lífinu, og væri búin að standa í mjööög miklum tilfinningalegum flækjum og vangaveltum núna undanfarið
en svo átti ég eftir að verða alveg rosalega hamingjusöm ,)
já já þetta fer alltaf allt vel að lokum...
vildi samt óska þess að ég gæti verið að láta mig hlakka til að fara aftur til Madridar í September, eins og planið var... þó að ég hlakki alveg rosalega mikið til að vera í Reykjavík í skólanum og þar sem nánast ALLIR vinir mínir búa
verður alveg frábært held ég... og það eru ekki nema 4 klst í flugi til Madrid frá Keflavík... 
Stjörnuspáin mín í dag ,) sounds good
Vog: Þú hefur vald yfir einhverju sem þú telur þig ekki hafa neina stjórn á. Breyting á þér breytir öllu. Í stað þess að íhuga þetta, skaltu trúa því og hegða þér samkvæmt því.
Ég fór á Lunga í gær, á dj Trentemöller (lesist með dönskum framburði ,) og jájá voða gaman, að hitta fólk og á rúntinum og spjalla og svona... hef nú ekki mikið gott að segja um dj ana samt, frekar slappir... var að keyra fyrir Vignir Örn, og Hilmar og Benna og Andreas... mjög gaman bara, var eiginlega bara skemmtilegast fyrir ballið hjá okkur...
fór líka á Seyðisfjörð á fimmtudaginn á Fatahönnunarsýningu og síðasta sunnudag til Þórhalls... s.s. 3 ferðir á Seyðisfjörð á einni viku... nokkuð vel af sér vikið
og já ég nenni ekki að skrifa meira núna, ætla að fara að sofa
»
15.07.2008 19:39:33 / helgarj
ætlaði bara að láta ykkur vita að ég væri komin til Íslands... og alla leið á Eskifjörð meira að segja ,)
oooog já þetta hefur ekkert breyst hérna...
»
30.06.2008 22:35:22 / helgarj
»
22.06.2008 22:44:16 / helgarj
2 dagar eftir í Madrid

gráti grát
fór til Torrevieja í vikunni og kíkti adeins á mommu og pabba og thau í 2 daga... forum á strondina og lágum í sundlauginni mmmm aedi !
er núna í madrid, ad deyyyyja úr hita úff maeli ekki med stórborgum ad sumri til...
fer svo til Torrevieja á thridjudaginn kl 4 og svo til íslands 1.júlí !!!
hlakka geggjad til... en vá hvad ég kvídi fyrir líka
thad var haldid kvedjupartý fyrir mig í skólanum um daginn, keyptur bjór og sangría og snakk og laeti og haldid partý á patióinu ,)
svoldid erfitt ad kvedja alla hérna... uhuuu
og já !
vid unnum The Party project !!! ég, Javier og Valentin
og fáum í verdlaun viku workshop hjá Vitra eda Ikea

í Svíthjód eda Frakklandi geggjad geggjad
Vid erum best !
en thetta var partý samkeppni fyrir J&B Wisky... svaka verkefni, rosaleg gaman, voda verdlaunaafhending med fraegum fatahonnudum og voda gaman ,) !!!
Sjáumst svo bara fljótlega
»
08.06.2008 19:29:19 / helgarj
í dag er ár síðan ég flutti til spánar... svoldið skrítið
mikið ? lítið ? finnst mér það hafa liðið hratt eða hægt ? ég eiginlega veit það ekki...
jú frekar hratt held ég
en vá
breytingarnar á lífi mínu á þessu 1 ári ,) og upplifarnirnar
fyrir ári síðan átti ég 2 hús, og Ægir eitt í viðbót... fínan bíl og svo corolluna beygluðu...
og peninga til að gera nánast hvað sem var! hitti fjölskylduna mína og vini á hverjum degi... the easy life ,)
núna ári seinna...
á ég eitt hús reyndar ennþá, sem stendur tómt nánast allt árið ,) engan bíl, engan peninga, hitti aldrei fjölskylduna mína eða æskuvini haha og vinir mínir hér sem ég á, hef ég ekki þekkt neinn eiginlega lengur en frá jólum... og flestum bara kynnst almennilega núna síðustu mánuðina... með aukinni spænskukunnáttu ,) en þykir ofboðslega vænt um þá marga samt !
ég á eiginlega ekki kærasta, búin að hætta með tveimur á árinu.... sem ég hafði aldrei á ævinni minni gert áður... búin að upplifa meiri ást og góðar stundir, en samt líka meiri þjáningu og söknuð heldur en nokkurn tíma á ævinni áður...
En vildi ekki hafa sleppt neinu af þessu ! Hef aldrei verið sáttari eiginlega ,)
og í dag er ég svo fullkomlega tilbúin til að fara heim aftur !
Jii hvað ég hlakka til orðið að koma heim til ykkar...
og vá hvað það verður nú fínt að fara í tíma í haust í LHÍ og skilja ALLT sem fer þar fram haha ekki bara svona "jájá næstum því" 90% hann hlýtur að hafa verið að meina þetta...
Eyði núna mestum mínum tíma í að hjálpa vinum mínum með lokaverkefnin sín... Elín, Nicolas, Isabel og Javier fá að njóta góðs af því að ég sé hætt í skólanum ,)
og já einmitt.. ég ákvað að hætta bara strax í skólanum... gat hvort sem er ekkert einbeitt mér, og finnst betra bara að ekki gera eitthvað, heldur en að gera það illa... voðalega fínt líka að hjálpa bara hinum, og geta komið og farið þegar mér hentar...
er samt búin að fá nokkrar einkunnir... 9 , 9,5 og 8,7 veit svo ekki alveg hvernig fer með restina af áföngunum... fæ samt held ég nokkar fínar einkunnir í viðbót, þó að ég sé hætt... ,)
Mikið getur verið skrítið hvernig mismunandi tilfinningar maður fær yfir því að labba einn um göturnar í svona stórborg... þegar mér líður vel, er það best í heimi að labba einn um göturnar, horfa á fólkið, og byggingarnar og bílana og finna orkuna... en þegar maður er down og einmana, þá líður manni ennþá verr að fara út á götu, endalaust af fólki, þér finnst þú meira einn þar heldur en aleinn inni í þinni íbúð...
Hlakka til að komast heim í sumarið ! það jafnast ekkert á við sumarfílinginn á íslandi ,)
er að spá í að fara til Torrevieja á fimmtudaginn í smá heimsókn, mamma og pabbi og Snædís og Snæþór koma þangað þá... og ég er farin að sakna þeirra voðalega mikið ,)
Þarf svo að fara að pakka niður hérna og losa mig við dót...
»
31.05.2008 16:45:14 / helgarj
já já
ætla að taka upp það milllinafn held ég
færi mér vel
því að ég er núna alvarlega alvarlega að hugsa um að koma í Listaháskólann í vöruhönnun...
áttaði mig á því að ég byggði ákvörðunina mína á að vera hér, of mikið á röngumhlutum... þó að ég hefði meðvitað reynt að gera það ekki,
s.s. á einum strák, spánverja sem heitir Javier ,)
en hann er að fara til Mexíkó í skiptinám samt
og er þvi að reyna að taka ákvörðun með bara mig og menntunína í huga... og þá er það LHÍ sem kemur betur út...
og já þarf að gefa endanlega ákvörðun á morgun
og þá myndi ég held ég bara hætta hér strax, próf og lokaskil þessa vikuna og næstu, og yrði brjálað brjálað að gera... til einskis í rauninni
væri ekki bara betra að slappa af, jafna mig, og reyna að njóta þessara síðustu vikna hér, fara svo til torrevieja á ströndina í smá tíma og svo heim að vinna
get heldur enganvegin einbeitt mér núna að verkefnunum, hugsa bara ísland spánn, ma
drid, reykjavík, vinir mínir á íslandi, mamma pabbi og systkini mín, skóli, nám, viðurkenningar, betri verkefni á íslensku, skemmtilegt í madrid, Elín, spænsku vinir mínir hér, Javier, ekki Javier...
og word pakkinn minn hætti að virka í dag, var svona 4 mánaða kynnisútgáfa semkom með tölvunni ,) haha og ég get ekki gert Memoría (skýrslu) um verkefnið sem ég á að skila næstum tilbúnu á mánudag... og ég gleymdi teiknitöskunni minni í skólanum, pennaveskinu mínu og ´blýöntunum í gæt... var svoldið utanvið mig í gær... nýbúin að tala við listaháskólann og fá að vita að ég hefði ennþá tíma til að ákveða mig, sár og ósofin... þannig að það er eiginlega bara 1 möguleiki í stöðunni
LHÍ here i come ! ???? er það ekki annars ?
update á morgun... þegar ég verð búin að senda svarið mitt
UPDATE:
ég er búin að staðfesta við LHÍ að ég komi þangað !!!! byrja 25.ágúst
og fór áðan og sagði upp íbúðinni hérna
og er farin að hitta hann Javier minn aftur....
Þær flækjur sem maður kemur sér ekki í alveg svona gjörsamlega viljandi ,)
gaman að þessu
ísland gamla ísland...
ég er nú samt alveg næstum með tárin í augunum yfir því að vera að fara héðan... elska Madrid ! og þykir orðið svo vænt um vini mína hérna...
sat hérna skjálfandi og með tárin í augunum þegar ég sendi e-mailinn í gær á LHÍ...
gat varla ýtt á send takkann..... endaði á að gera það með vinstri hendinni ,)
en ætli það sé ekki gáfulegra að hugsa um menntunina og tækifærin og verkefnin sem maður fær í framtíðinni
heldur en sól og skemmtanir á spáni... ,) í 2 ár
en það er nú reyndar ekkert búið að vera svo gott veður hérna þetta vorið... hálf haustlegt eitthvað... búin að koma úrhellisrigning á hverjum degi í marga daga, en svo sól á milli.. hálf skýjað oft og brr asnalegt... er víst mjööög óvenjulegt segja þau hérna...
en jæja, best ég drulli mér í skólann aftur, á verkstæðið að gera flísamót, út mdf, og plasthitamóta svo flísar...
adios !
»
25.05.2008 14:06:48 / helgarj
að hafa Örnu hérna hjá mér ! hittum chikilicuatro, eurovisi ongaur spánverja á djamminu með Elínu ,) fórum í Retiro í sólbað, fórum í ræktina, borðuðum góðan mat, og hollan ! fórum um á nóttunni rífandi greinar af trjám á Luna og Plaza de Espana ,) er að gera verkefni hérna, herðatré sem lítur út eins og trjágrein og vantaði greinar til að búa til mót... fyrirgefiði tré... en þetta er að koma bara helvíti vel út þ.e.a.s. herðatréið...
Hver er takturinn í herðatrjám ? eða takturinn við að nota þau? eða útlitið.... eða ???? þarf að hafa svar við því á morgun...
opnunarsýning á sementsverkefninu okkar, þökulögðum sýningarsalinn, jarðaber með súkkulaði og kampavín, þökulögðum stigapallinn í skólanum og vökvuðum allt saman ,) inni og úti hehehe
Svo fórum við Arna á djammið með Javier mínum, Valentin og Carlosi... fyrst fórum við reyndar á sýninguna "Bodies", sem eru lík af kínverjum skorin og opin, á ýmsa vegu, skinnlaus, sést í vöðvana, sinarnar beinagrindina, liðamótin og innyflin og svona allskonar skemmtilegt, smá partý heima hja mér, og svo djammrölt
svo fórum við í grillveislu í sveitinni, með Elínu og ´felögum, þ.e.a.s. kærastanum hennar og vinum hans... og þar voru asnar og hestar og hænur og voða gaman... fyndin grillveisla, og löng leið að fara, því að húsið er hinum megin við þar sem að kóngurinn býr og þess vegna þurftum við að fara þvílíka krókaleiðina að húsinu... en vá geggjað útsýni þaðan... bara sveitin og svo 4 stóru skýjakljúfarnir í Madrid sem við sáum æði
löbbuðum um bæinn og skoðuðum höllina og allskonar torg og einhverja Madrid hátíð, fólk dansandi úti og í allskonar gamaldags fötum
oooog svo fórum við að versla hmm ha hmmmm ha
og ég keypti mér kjólinn í Diesel sem ég varð ástfangin af um daginn... og annan kjól og jakka í Diesel... fátækir námsmenn.. hvað er það ??? ÉG ha hmmm allavega eftir þessa verslunarferð hehe
fórum svo á bar... chill out þar sem eru eiginlega bar svona rúm til að sitja/liggja í, allt hvítt og mjúkt... og fengum okkur þar eitt hvítvínsglas...
Takk æðislega fyrir komuna Arna !!!
verst að internetið mitt er búið að vera óþolandi síðustu 2 vikur og ég hef ekki getað sett inn myndir, eða sent mail með viðhengjum og er endalaust dettandi út af msn og þarf að refresha allar síður 2svar til að komast inn á þær.... þannig að já kannski ég komi myndum innaf öllu þessu einhvern daginn, annars þurfið þið bara að ímynda ykkur þetta haha
og já svo var iedentity partý hjá skólanum á fimmtudaginn, þá leigja þeir diskótek fyrir okkkur, skil samt ekki fræðina að hafa þau á fimmtudögum og tímar svo kl 9 á föstudagsmorgni.... það var fínt bara... fór seint þangað og snemma heim, smá fyrirpartý heima en svo var ég búin að fá nóg um 4... átti líka að fara í tíma kl 9
en já
Annars hef ég það bara mjööög fínt hérna
nema að Lisaháskólinn hringdi í mig á miðvikudaginn og ég komst inn !!! sótti um í vöruhönnun þar um páskana... og það komast bara 9 inn á hverju ári... mjög gaman að hafa komist inn.... EN NÚ ER ÉG GJÖRSAMLEGA LOST !! HVAÐ Á ÉG AÐ GERA ?
FLYTJA TIL ÍSLANDS EFTIR MÁNUÐ SHIT.... ? VERA HÉR ?
en ég færi inn á 1 ár þar... 3 ár í reykjavík ???? mér likar nú betur við Madrid... en ég veit að LHÍ er góður skóli, betri en sá sem ég er í held ég... eða já hef nú reyndar ekki hugmynd um það... og LHÍ kostar meira en helmingi minn á´ári en skólinn sem ég er í 280 þúsund í staðinn fyrir næstum 800 þúsund... en það er nú held ég dýrara að lifa í Reykjavík... og svo er líka betra veður hér... en það eiga allir vinir mínir heima í Reykjavík... á nú reyndar fullt af nýjum vinum hér.... og ég held að ég gæti gert verkefnin mín miklu betur á íslensku heldur en á spænsku... en ég læri nú samt svo helling bara á því að vera hér... nýja sýn á heiminn og allt, og að bjarga mér... og svo er nú alltaf voðalega vinsælt og flott að hafa lært í "útlöndum" upp á að fá vinnu á íslandi´síðan í framtíðinni held ég..... ekki það samt að mig langi neitt rosaleg til að búa á íslandi í framtíðinni..... aaaaaaaaaaaaaaa !!!!!
ÉG ER LOST ! 
HVAÐ Á ÉG AÐ GERA ???
og ég hef tíma fram á föstudag til að ákveða mig
»
09.05.2008 12:26:24 / helgarj
Arna er að koma i heimsókn til mín á morgun !!!!
æði æði æði 
jii hvað ég hlakka til
Takk Óli !
og hún verður í 8 daga hjá mér ,)
og bara 3 skóladagar í næstu viku... verða reyndar svoldið busy tveir af þeim, erum að klára að setja upp sýningu á sementsverkefninu okkar, allt á fullu, endanleg uppsetning á mánudaginn og svo opnunarhátíð á þriðjudagskvöldið
og gott hjá þeim í skólanum að þeir settu líka á okkur aukatíma í Modelistica á þriðjudaginn, s.s. tímar frá 9 - 19, lengsti dagur minn í sögu skólans held ég og svo opnunarhátíðin kl 19:00 góðir góðir
»
04.05.2008 01:05:04 / helgarj
Smá sýnishorn frá ferðinni til Torrevieja... var æði með ömmu og afa á spáni og Tryggva, Öbbu og Þórdís Thelmu... djamm með frændum mínum Andra og Didda bara gaman !
Sólböð, strandaferð, þythokkí við ömmu, Flamencohátíð, borðað á Gran Mundo eðal chino og svo Piparsteik mmm


og já ég er komin með FLICKR set myndirnar mínar framvegis þar inn ,)
»
24.04.2008 19:18:25 / helgarj
Gaman að frá comment frá ykkur stelpur

miss you
búið að vera æðislegt veður í dag... 25 stiga hiti og sól
ég og isabel og einn strákur úr bekknum okkar tókum með okkur eina Sangríuflösku og glös og fórum á eitt torgið hérna eftir skóla... mmm æði
er alveg dofin núna eftir hitann... og sangríuna ætli það ekki líka hehe
Löng helgi hjá mér næstu helgi... og ég ætla til Torrevieja !! á ströndina ,) Amma og Afi og Abba og Tryggvi og Þórdís Thelma eru að koma thangað á mánudaginn og ætla að vera í rúmar 2 vikur og ég ætla að fara að heimsækja þau í nokkra daga... fer þangað á miðvikudaginn og kem svo aftur hingað til Madrid á laugardaginn pues bién ,) næ vonandi smá lit svona þegar ég kemst út úr borginni, og get setið á sundlaugarbakkanum MÍNUM ,)
en ekki Ragga... hún ætlar ekki að koma með ,) hmm Ragga hehe
Lenti á Fuencarral í dag... verslunargötu hérna sem er með Diesel og G star og desigual, Skunk Funk og öllum þessum búðum...
í svona góðu veðri... svona voða happy ,) er erfitt að hafa stjórn á sér een ég keypti mér nú bara einn kjól... ekki það að ég sé ekki yfir mig ástfangin af öðrum kjól í Diesel núna... mmm gallakjól, rétt niður fyrir hné, hlýralaus, dökkblár gourgeous !! 140 evrur ? hvað er það á milli vina þ.e.a.s. á milli mín og Diesel

my best buddy
jæja kannski ég fari að taka til, ámeðan kjúklingurinn eldast sem ég er að elda og fari svo í ræktina á eftir...klukkan svona 10... þegar það verður runnið af mér

híhí
Erum annars svo að fara á Feria internaciónal de los Muebles Madrid með skólanum á morgun... Iðnhönnunardeildin, eða já 1 árið bara
s.s. Alþjóðlega húsgagnahátíðin í Madrid, ætli það myndi ekki þýðast þannig....
jámm ég ætla að fara að skúra
ciao!
»
20.04.2008 22:31:10 / helgarj
verkefni helgarinnar:
- að hanna eitthvað og búa það til úr þunnri plötu úr einhverju efni í stærð A2, og lágmark nota 90% efnisins... og ég ákvað á endanum að gera myndaramma úr áli
- og að teikna þvottaklemmu, allar hliðarnar og hvernig hún opnast og svo eina svona 3D með málum...
og já núna er klukkan orðin rúmlega 12 á sunnudagskvöldi og jújú ramminn er langt kominn, hálfur samanlímdur í þornun hérna á gólfinu hjá mér og ég er ekki byrjuð á teikningunni af þvottaklemmunni, og þessu á ég að skila á morgun góð Helga ! ég er orðin of spænsk... alveg hætt að gera heimaverkefnin mín mörgum dögum fyrir skiladag og gera þau 3svar til að þau væru fullkomin... núna er ég að mæta á hlaupum með dótið mitt á síðustu mínútu ! spænka leiðin víst... Ætla að fara að taka upp gamlar venjur aftur og fara að standa mig ! ekkert gaman að vera svona stressuð á síðustu stundu hehe
Ég og Isabel skelltum okkur á djammið í gær... ég byrjaði reyndar með Skúla, á Brownie ferð á Burger King og svo fórum við heim til hans... drógum svo með okkur strákinn sem á íbúðina sem hann býr í, heim til mín.
Mokuðum okkur svo út úr húsi á diskótek hérna, fyrst á the Low, Público... og fengum okkur þar einn drykk og æddum við yfir á Sala Heineken ! Lúxus að búa svona í miðbænum, öll diskótek bæjarins hérna í 5 mínútna göngufjarlægð ,) ekki slæmt ekki slæmt !
Strákarnir yfirgáfu okkur eitthvað um 5 leytið og þá vorum við bara þarna einar eftir... með öllum litlu strákunum
muhahaha get svo svarið það... svona 90% af þeim voru 16 ára og við þarna "gömlu konurnar" ,) og að ég tali nú ekki um gógó dansarana je dúdda endalaust fyndið, frekar glataðir gaurar... í þröngum glansandi nærbuxum, einn var nú bara í G streng, og svo í hvítum hnésokkum og með svona skyrtuhálsmál um hálsinn og hatt... og mjaðmahnykkirnir og hristurnar muhahaha
en gegt stuð !
Fór svo í ræktina áðan... úff hvað áfengið segir til sín, var nær dauð eftir 7 og hálfa mínútu á skíðavélinni hahaha
jæja kannski ég fari að halda áfram að læra
ciao !
»
17.04.2008 20:19:00 / helgarj
sumarið er tíminn... !!! þegar mér líður best.... með stúlkunni minni (hehe já eða þannig) á Aaarnarhól.... eða "ííí Re
tiro" jaaáá
lalalala
Vor í Madrid er bara snilld mmm
það er nú reyndar ekkert sumarveður í dag, skúrir og skýjað... og 15 stiga hiti eeen samt svona ekta íslenskt sumar bara
og spáir svipað næstu daga... en það voru alveg 24° í gær held ég
en það er samt komið sumar hjá mér, ég er meira að segja í pilsi í dag... fór í ræktina kl 9 í morgun, er öll að koma til, og nææææstum alveg hætt að borða á Burger King
Brjálað að gera í skólanum... eins og það var nú ekkert að gera á seinustu önn, þá hafa kennarnir fengið eitthvað spark í rassinn virðist vera úff er búin að vera að fram eftir nóttu alla vikuna og þetta er nú bara vika 3 af önninni, ég veit ekki hvernig þetta verður eiginlega þegar fer að líða á önnina... þar sem að við erum líka að setja upp syningu á sementsverkefnunum okkar, eða þeim útvöldu þ.e.a.s.

auðvitað mínu náttla hehe og svo var einhver bossi í skólanum að senda mér og 5 öðrum á 1 ári mail að biðja okkur um að taka´þátt í samkeppni fyrir Muji, sem eru svona hönnunarbúðir... fáum held ég einhverjar upplýsingar um það meiri á morgun... en ég veit ekki alveg hvort mér lítist á það... hópavinna með einhverju ókunnugu fólki skilst mér, og við 1 í hverjum hóp... en kemur í ljós
og svo voru krakkar á 2 ári að biðja mig um að vera með í verkefni sem þau ætla að fara að gera, sem á ad enda med partýi í skólanum og eitthvað þannig skildist mér, á eftir að fá að vita meira um það líka

nóóóg að gera
en já ég hef það bara mjög fínt

eyði næstum öllum deginum alltaf orðið í skólanum, á verkstæðinu... gengur fínt að renna plastið í trérennibekknum ef þið skilduð hafa áhuga á að vita það en svoldið hægt samt en í fínu lagi samt, því að það er enginn annar að nota rennibekkinn og ég get skilið dótið mitt eftir þar í bekknum og enginn er að fikta í því... er allir skíthræddir við rennibekkinn...
hef nú ekkert sniðugt að segja ykkur frekar slæmt
verð að reyna að gera eitthvað sniðugt um helgina til að segja ykkur

adios !
»
13.04.2008 14:42:17 / helgarj
TIL LEIGU
www.fotki.com/elmelrose
49.þúsund vikan, 3 svefnherbergi...
loftkæling, þráðlaust internet
gæti þetta verið eitthvað betra ,)


Þekkiði ekki einhvern sem langar að fara til spánar í sumar ? ,)
endilega sendiði fólki linkinn minn...
»
Síður:
1 2 3 ...
18